Jólabjórrýni Feitabjarnar 2017
Jólabjórrýni Feitabjarnar 2017
Já börnin mín góð. Við lifum á áhugaverðum tímum. Þegar
þetta er skrifað er nýbúið að birta níu ára gamalt leyndósímtal Davíðs og Geirs
um hvernig væri gáfulegast að koma af stað efnahagshruni, skatta-Kata er gengin
í björg og við erum að horfa upp á langdregið dauðastríð Sjálfstæðisflokksins
sem virðist vera að takast að draga nokkurn veginn alla aðra stjórnmálaflokka
landsins niður með sér. Í svona aðstæðum er aðeins eitt ráð og það er að drekka
frá sér ráð og rænu, helst daglega og jafnvel oftar en einu sinni á dag.
Það skiptir engu máli hvort lifrin bilar því það er hvort
sem er ekkert heilbrigðiskerfi lengur, menntakerfið er í þvílíkri rúst að ég
fór áðan í fjórar matvörubúðir en hvergi var hægt að fá stafapasta, Glitnir
HoldCo munu að öllum líkindum setja lögbann á jólabjórrýni Feitabjarnar
fljótlega og Vottar Jehóva voru að hringja. Í þetta sinn er þeim alvara sögðu
þeir. Það ER að koma heimsendir.
Það er því ekkert vitrænt í stöðunni næstu vikur annað en að
reyna að vera sem oftast og sem lengst án meðvitundar vegna drykkju.
Jólabjórinn datt í búðir í vikunni og nú getið þið, kæru landsmenn, notið
leiðsagnar sérfræðings um það hvað sé best að nota til að slæva hugann fram
yfir stjórnarmyndun, jól, áramót og næstu kosningar, sem verða líklega uppúr
miðjum janúar.
Á þessu herrans ári er úrvalið af íslenskum jólabjórum meira
en nokkru sinni fyrr og munurinn á gæðum hefur að sama skapi sjaldan verið
jafnmikill. Heilar tuttugu tegundir fást í Vínbúðum ríkisins og fleiri er að fá
á öldurhúsum. Meðan þetta er skrifað situr skítsæmilegur belgískur dubbel í
glasi og bíður þess að ná drekkanlegu hitastigi. Fagnaðarerindið heitir bjórinn
og fæst á Bryggjunni. Annar fékkst á Microbar í vikunni og kom frá Vestmannaeyjum,
kallaður Andrés utangátta. Hann var fínn. En hér verður sem sagt bara fjallað
um þær tegundir sem hægt er að kaupa í þartilgerðum verslunum og taka með sér
heim áður en drukkið er. Ef heimurinn
ferst ekki er reyndar alveg líklegt að sú frjálslyndis- og framfarastjórn sem
þrír framsóknarflokkar eru að reyna að mynda, verði búin að aflétta
ríkiseinokun á bjórsölu og maður geti keypt jólabjórinn 2018 í Bónus.
Djók!
Jólabjórsmökkun Feitabjarnar og Koppa-Krissa fór fram með
þeim hætti að bjórunum var skipt í fimm flokka þar sem reynt var að grúppa
saman áþekkum bjórum. Smakkaðar voru fimm tegundir í senn, ein úr hverjum
flokki og svo pása á milli. Af fenginni reynslu var ekki mikið lagt upp úr því
að smökkurum væri ókunnugt um hvaða bjórar voru smakkaðir hverju sinni, en til
að tryggja hlutlaus úrslit voru fimm stigahæstu tegundirnar blindsmakkaðar í
lokin. Þá kom upp óvænt staða því bjórinn
með þriðja hæsta stigafjölda varð hlutskarpari en sá sem hafði verið
næstefstur. Stigagjöf var löguð að
þessum úrslitum og bjórarnir tveir látnir vera jafnir í öðru til þriðja sæti
með jafnmörg stig.
Úrslitin voru hins vegar mjög afgerandi hvað varðar efsta
sætið, eins og koma mun í ljós áður en lestri lýkur.
Hér á eftir fara þá umsagnir um bjórana í handahófskenndri
röð, nema hvað besti jólabjórinn er geymdur þar til í lokin. Verði ykkur að
góðu.
Jóla kaldi – 5,4% - 399 kr.
Ekki byrjar það neitt sérstaklega illa í ár. Vinir mínir á
Árskógssandi hafa átt það til undanfarin ár að klúðra jólabjórnum sínum
illilega en þessi er bara alveg prýðilegur sem slíkur. Léttur og hressandi með
mjúkri karamelluslikju og þetta ramma skítaeftirbragð sem hefur stundum plagað
Kalda er ekki til staðar í ár. Kannski þeir hafi skúrað hjá sér, hver veit? Í
flokki fjöldaframleiðslubjóra fyrir almúgann kemur þessi sterkur inn og það er
alveg hægt að sökkva þó nokkrum svona á góðu kvöldi.
2 ½ *
Askasleikir – 5,8% - 484 kr.
Jólabjór síðasta árs frá Borg brugghúsi er snúinn aftur og
nú aðeins fáanlegur í dós. Hver fékk þessa hugmynd og hvar er sá aðili núna
kominn með vinnu? Jólalegi reykjarkeimurinn frá í fyrra er á bak og burt og
eftir stendur ávaxtabragð sem minnir óþyrmilega á Egils appelsín. Það endist
ekki lengi og þótt bragðið sé hressandi í fyrstu þá súrnar gamanið fljótt eins
og óviðeigandi brandari innan um penar og dannaðar samstarfskonur í drögtum.
2 *
Ölvisholt 24 Barley Wine – 10% - 798 kr.
Ef maður á að reyna að vera jákvæður þá er allavega ekki
hægt að halda því fram að það sé ekki verið að reyna. Það þarf metnað til að
ráðast í að búa til barley wine og þar sem Giljagaur hefur nokkurn veginn
masterað þann markað þá veltir maður því fyrir sér afhverju Selfoss er að
þessu. Þetta er algjörlega glatað! Allt of væmið bragð, eins og kaka í glasi
nema kökur geta stundum verið góðar á bragðið. Þessi bjór minnir á fulla
miðaldra konu sem hefur sett á sig allt of mikið ilmvatn, svo mikið að maður
fær tár í augun, án þess þó að henni hafi heppnast að breiða yfir súra
líkamslyktina.
½ *
Bara kíló pipar – 5,8% - 499 kr.
Stolnar piparkökur eru vondar á bragðið segir Hérastubbur
bakari. Ég kannast ekki við að hafa borgað neitt minna en fullt verð fyrir
þetta rugl en bjórinn verður ekkert betri samt. Hann byrjar á gríðarlega
sterkri negullykt sem er ekki alslæm en svo kemur bragð sem er langt frá því
sem nokkur maður getur viljað. Minnir einna helst á rúllupylsu. Bjórinn er svo
útúrkryddaður og bragðmikill að það er hreinlega erfitt að kyngja honum. Eina
ráðið til að koma honum niður er að þamba hann en það er ekki gott heldur því
þá hellist yfir mann kanilbragð og engifer og manni líður eins og verið sé að
lemja mann í hausinn með óhreinu kökukefli.
1 ½ *
Thule jólabjór – 5,4% - 377 kr.
Það eru ekki allir sem eru hrifnir af jólabjór og hér er
kominn jólabjór fyrir þá sem eru það ekki. Hann skartar nákvæmlega engu af því
sem gerir jólabjór jólalegan, nema kannski fáeinum snjókornum á umbúðunum. Eilítið
dekkri á litinn en standard útgáfan af Thule og með góðum vilja má skynja að
hann er bragðbættur með þeim hætti sem líklegastur er til að stuða sem fæsta.
Pínu vottur af hunangi til að hann sé ögn sætari en það er allt og sumt.
Einhvers staðar er samt til óspennandi fólk sem birtir mynd af Thule jólabjór á
Instagram.
2 *
Jóla Kaldi súkkulaði porter – 6,5% - 464 kr.
Einu sinni varð Feitibjörn fyrir þeirri lífsreynslu á
hommabar að risavaxinn þelþökkur maður spurði kurteislega hvort bjóða mætti
koss. Í sumum kringumstæðum er slík kurteisisframkoma einfaldlega ekki málið.
Kaldi súkkulaði porter væri eflaust mun betri ef hann þyrði að vera það sem
hann þykist vera. Fyrsti sopinn er mjúkur og sætur, ekki beint súkkulaði heldur
frekar kaffi og kanill. Svo bíður maður eftir að hann færi sig upp á skaftið en
í staðinn kemur gamalkunnugt Kalda-eftirbragð eins og blökkumaðurinn hafi
gleymt að bursta tennurnar.
3 *
Egils malt – 5,6% - 389 kr.
Á jóladag er Feitibjörn vanur að borða hangikjöt. Tvisvar.
Fyrst heima hjá mági sínum fljótlega upp úr hádegi. Sá er vanur að sjóða
hangikjötið á beini upp á gamla mátann og hefur stálheiðarlegt meðlæti með:
Uppstúf, grænar og gular baunir úr dós, rauðbeður, asíur og dijon sinnep. Svo
um kvöldið er mamma gamla vön að hafa tvær sortir af hangikjöti, úrbeinuðu og
vandlega sneiddu. Með því er kartöflusalat, pikkles og súrsuð hvítlauksrif
ásamt sinnepssmjöri. Í báðum tilvikum er boðið upp á jólabjór og ákavíti. Gera
má ráð fyrir að Egils malt sé hinn fullkomni drykkur á þessum degi, því Egils
malt stendur við gefin loforð, án þess þó að gera neinar sérstakar rósir.
3 ½ *
Steðji Special Almáttugur jólaöl – 6% - 432 kr.
Hér er á ferðinni alveg einstaklega vel heppnaður jólabjór.
Strax og hann er kominn í glasið sér maður að hann langar í þig jafn mikið og
þig langar í hann. Hann er froðumikill og kallar á mann með jólalegri angan.
Bragðið er svo ekki síðra og maður missir út úr sér eitt “VÁ!” við fyrsta
sopann. Þarna er púðursykur, smá kanill og í lokin vottar fyrir múskati.
Kryddbragðið er létt og leikandi, alls ekki aggressívt heldur nákvæmlega rétt
stillt upp á jólafíling. Geggjaður bjór.
4 *
Viking jólabjór – 5% - 352 kr.
Hér er bókstaflega ekkert að frétta. Þessi bjór er ekki
bragðmikill, hvorki sætur né beiskur, það er ekki mikil fylling í honum, lyktin
er lítil, hann freyðir frekar lítið og skilur lítið eftir sig. Líklegast mætti
alveg sleppa því að drekka hann án þess að maður yrði var við það. Ævintýralega
óspennandi. Honum tekst eiginlega ekki einu sinni að vera almennilega vondur.
1 *
Viking Yule Bock – 6,2% - 450 kr.
Í verslunarleiðangri Feitabjarnar fengust þær upplýsingar að
ein bjórtegund sem stóð til að yrði á boðstólum í fyrsta sinn hefði verið
innkölluð af framleiðanda. Ekki veit maður nákvæmlega hver kann að vera skýring
á því en það má gera ráð fyrir að það hafi haft eitthvað með gæði
framleiðslunnar að gera. Brugghúsið hefur áttað sig á því að það gæti haft slæm
áhrif á bissniss til lengri tíma litið að bjóða upp á misheppnaðan jólabjór í
fyrstu tilraun. Sé það skýringin þá mega bjórgerðarmennirnir sem bjuggu til
þetta sull taka það sér til fyrirmyndar. Þetta er flatur og óspennandi dökkur
jólabjór sem býr ekki yfir neinni spennu né kikki. Það er helst að froðan í
glasinu veki væntingar áður en smakkað er en hún er ekki einu sinni góð, heldur
fær maður á tilfinninguna að dassi af uppþvottalegi hafi verið bætt í kútinn í
örvæntingarfullri tilraun til að gæða hann lífi.
1 ½ *
Bjólfur Grenibjór – 5,2% - 491 kr.
Hvað vorum við að tala um? Fyrsta tilraun til að koma sér
inn á jólabjórmarkaðinn má ekki klikka. Austri er reyndar fínasta brugghús og
það sem hefur komið frá þeim hingað til hefur alltaf verið gott. Líklega má
gefa þeim prik fyrir hugrekki en grenibjór er alveg nýtt konsept í huga
Feitabjarnar. Fyrstu kynni lofa samt ekki góðu, það er eins og maður sé staddur
í Blómavali þegar glasið er borið upp að vitum. Bragðið er síðan mjög…
óvanalegt skulum við segja. Svo óvanalegt að Koppa-Krissi fór að rifja upp
gömlu dagana í mótorhjólagenginu þegar einhverjum datt í hug
manndómsvígsluaðferð sem er of ógeðsleg til að henni verði lýst hér. Sú
aðferð náði sem betur fer ekki hylli og það gerir þessi bjór ekki heldur.
0 *
Einstök Doppelbock – 6,7% - 492 kr.
Þetta er almennilegt! Það er allskonar í ilminum sem fær
mann til að hlakka til að smakka. Þá er maður heldur ekki svikinn því bjórinn
hefur margslungið bragð sem grípur í bragðlaukana og dregur þá um krókótta
stíga eins og góður gestgjafi í framandi borg sem þekkir alla bestu staðina.
Einstök bregst aldrei. Ómissandi hluti af jólahátíðinni eins og alltaf og það er gaman að segja frá því að í blindsmökkun náði þessi gamla vinkona að mjaka sér upp um eitt sæti í stigagjöfinni.
4 ½ *
Jólagull – 5,4% - 379 kr.
Jólabjór fátæka mannsins. Samt er hann túkalli dýrari en
Thule sullið. Þunnur og lyktarlítill, sama gamla bragðlausa gutlið með smá
sítrónukeim sem á líklega að gera hann auðdrekkanlegan. Nei, það er ekki
auðvelt að drekka þennan bjór. Það er líka sjaldan auðvelt að hella bjór í
vaskinn en hér er komin undantekning frá þeirri reglu. Það virðist vera sú
mikla nýlunda hér á ferð að bætt er teskeið af kanil í uppskriftina til að
keyra jólastemmninguna upp. Fyrir þá viðleitni sleppur hann við núllið.
½ *
Boli Doppelbock jólabjór – 7,5% - 469 kr.
Góður. Höfum það á hreinu og þeir hafa meira að segja náð að
bæta hann síðan síðast, þegar það var sterkur áfengiskeimur sem var
akkilesarhællinn. Núna er mikið að gerast í bragðinu, bæði kaffi og lakkrís og
karamella. Sterkur er hann líka svo manni hýrnar strax í skapi og allt verður
einhvern veginn jákvæðara. Soldið eins og þybbna stelpan á skrifstofunni
birtist óvænt og vilji vanga. Hún er þá kannski bara frekar sæt eftir allt
saman? Boli fellur hins vegar á mikilvægu atriði, sem er eftirbragðið. Það er
einfaldlega ekki til staðar og því hverfur jákvæðnin eins og dögg fyrir sólu.
Vangafélaginn skreppur á klóið og á meðan tekur maður sönsum og drífur sig
heim.
3 *
Giljagaur – 10% - 777 kr.
Það verða eiginlega engin jól nema Feitibjörn fái sér að
minnsta kosti einn Giljagaur. Það má hins vegar helst ekki fá sér nema einn. Þá
meina ég að þessu sinni ekki að það eigi að drekka einn í einu, heldur að það
sé ekki ráðlegt að drekka fleiri en einn Giljagaur þessi jólin yfirhöfuð. Það
þarf að velja rétta augnablikið því það er svo margt í gangi í þessum bjór að
það er nánast einsdæmi. Eiginlega aðeins of mikið í gangi svo maður segi nú
alveg eins og er. Þessi eini gæti átt heima í stórhríðinni milli jóla og nýjárs
þegar börnin eru sofnuð og draugamynd í sjónvarpinu. Það væri gott. Verra væri
ef það væri á sunnudagseftirmiðdegi í aðventunni þegar fótboltinn er búinn og
fjölskyldan bíður eftir að maður komi heim og búi til kvöldmat.
3 *
Segull 67 jólabjór – 5,4% - 399 kr.
Nú eru tvö ár liðin síðan Feitibjörn smakkaði Royal Xmas
bjór því sú happadrjúga ákvörðun var tekin í fyrra að halda sig eingöngu við
íslenska framleiðslu. Frændur vorir á Siglufirði telja greinilega þjóðþrifaverk
að halda merkjum vondra jólabjóra á lofti og bjóða hér upp á íslenska útgáfu af
ógeðinu sem sameinar allt það versta í vondum jólabjór. Hann er rammur, flatur,
súr og skólpkenndur.
0 *
Einstök Winter ale – 8% - 888 kr.
Ó já! Svona á að gera þetta. Loksins almennilegur metnaður
og hér er nostrað við smáatriðin. Það eru ekki bara greninálar sem bragðbæta
bjórinn, heldur hand-tíndar greninálar. Það er skemmtilegur keimur af viskí sem
lætur sæluhroll hríslanst niður eftir bakinu. Vindurinn má hamast á rúðunni og
landinn má hamast á kommentarkerfunum. Með einn svona í glasi getur ekkert
raskað ró manns. Allt verður yndislegt og maður veltir því fyrir sér eitt
augnablik hvað maður hafi gert til að verðskulda þessa sælu. Svo hættir maður
að pæla í því.
4 ½ *
Ölvisholt Heims um bjór hátíðaröl – 5% - 444 kr.
Svei! Og oj! Þetta er alls ekki gott. Það er eitthvað verið
að reyna að vinna með mandarínur en afleiðingin er bara sú að maður finnur
fyrir ólgu í magasýrunum. Sko. Gott jólapartí getur alveg haft í för með sér að
maður fái pínu gubbubragð í munninn – daginn eftir! Feitibjörn þekkir meira að
segja tilvik þar sem gott jólapartí setti fólk í þá aðstöðu að vera með
ungbarnagubbulykt í kringum sig ári síðar. En maður á helst ekki að leiða
hugann að gubbi þegar fyrsti sopinn af bjór er tekinn.
1 *
Steðji engifer blessaður jólabjór – 5,5% - 399 kr.
Já nei. Vertu blessaður. Hittir alls ekki í mark þrátt fyrir
viðleitni sem mætti túlka á jákvæðan hátt. Smá keimur af furunálum í glasinu
áður en maður sýpur en sjálfur bjórinn er einstaklega óspennandi. Eða það
heldur maður til að byrja með. Svo kemur þetta engifer-eftirbragð sem erfitt er
að skilja. Hverjum datt í hug að það væri sniðugt að búa til bragðdaufan bjór
og lauma svo í hann kryddi sem lætur mann svíða pínulítið í munninn á eftir?
½ *
Besti jólabjór ársins 2017 að mati Feitabjarnar og Koppa-Krissa:
Hurðaskellir – 11,5% - 1290 kr.
Hó, hó, hó og herregud i himlen, hvað þetta er mikil snilld.
Hurðaskellir heilsar hlæjandi og hamingjan hellist yfir hal og sprund. Það er
allt rétt, satt, gott og siðsamlegt við þennan fáránlega flotta bjór. Hann
lítur vel út í glasinu með mikla froðu og öflugan haus. Ilmurinn er algerlega
dásamlegur og svo kemur bragðið.
Ó mæ god, skiluru!
Bragðið er alger dásemd og himnasæla. Sterk karamella (þessi
sem sumir kalla butterscotch), smá viskíkeimur, svo kemur kaffi, því næst eik
og einhvers staðar í bakgrunninum er pínkuponsulítill lakkrís. Maður horfir á
glasið og trúir því varla hvað það þurfti lítinn sopa til að kalla fram þetta
sjúklega æði. Það er nóg eftir, best að fá sér annan sopa!
Dömur mínar og herrar, þetta er ekki bara besti jólabjórinn
á Íslandi árið 2017, það er óhætt að halda því fram að hér sé einfaldlega besti
jólabjór sem Ísland hefur alið. Þó víðar væri leitað, ekkert höfðatölukjaftæði.
Drífið ykkur út í búð og kaupið eins marga og þið hafið efni á.
Gleðileg jól elskurnar.
Ummæli
Kveðja
Elli
Ceramic vs Titanium Curling Iron. The traditional brass core is used to anchor the head of the earpiece, allowing titanium jewelry piercing you welding titanium to croc titanium flat iron adjust titanium vs platinum the angle of titanium dioxide formula