Hope I die before I get old...

Læknar hafa uppgötvað hugsanlega tengingu milli Viagra-neyslu og blindu. Eins og allir vita þá er ég mjög mótfallinn kynlífi, aðallega af hreinlætisástæðum, og ég verð bara að vona að það breytist ekkert þegar ég kemst á Viagra-aldurinn.

Samt spurning hvort maður verði ekki bara viljandi blindur á þeim aldri, konan manns getur varla verið mikið augnayndi eftir sjötugsaldurinn. Svona psychpsomatic dæmi.

Eða þá að menn fatti ekki að það sama gildir um gamla karla, og blindan orsakast bara af því að kerlingin notar tækifærið meðan kallinn gleypir pilluna, og SLEKKUR LJÓSIÐ...

Ég var eitthvað að röfla um fótbolta hér um daginn, eða Gin og Tonic ef þér finnst það betra. En svo hafa gulu englabossarnir mínir bara unnið alla sína leiki nema einn. Sem þýðir að þeir hafa unnið tvo. Húrrei!

Sagt var frá í fréttum að 20% allra vinnufærra manna í Liverpool hefði tilkynnt sig veika á fimmtudaginn var. Fyrst var talið að það væri vegna timburmanna eftir sigur þeirra rauðu í Quality Street-bikarnum. En ef vel er að gáð sést að talað var um VINNUFÆRA menn. Þetta voru allt Everton-supporters sem sátu heima til að þurfa ekki að horfa framan í smettið á sigurglöðum Liverpool-supporters.

Makes you think... svona miklir timburmenn, svona mikil sigurgleði. Annað eins myndi varla sjást hér á landi nema Þóra tæki Immagaddus heim með sér.

Nú er Immagaddus orðinn blindur, og það án þess að þurfa Viagra. Hann tók blásýru í staðinn.

Ummæli

Immagaddus sagði…
Ha.Ha.Ha.
Nei ég er ekki orðinn blindur.
En þú hafðir rétt fyrir þér að því leiti að sýran sem ég tók inn var blá.
Svo þetta með vinnufæra menn í Liverpool.
Það þýðir ekki endilega að þeir hafi vinnu.

Immagaddus segir.....

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2021

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2022

Feitibjörn tekur pásu