Pottþétt
Nú var rafvirkinn að yfirgefa pleisið. Búinn að tengja pottinn til bráðabirgða og ég er byrjaður að dæla vatni í hann. Svo þegar hann er orðinn fullur þá tekur við smá efnafræði (við erum svipaðir að því leyti...) en að öllu óbreyttu ættum við að geta vígt pottinn í fyrramálið.
Hljómflutningsgræjurnar í honum virka en rafvirkinn stillti á fm957 og fór. Ég ætla að sjá hvort mér takist ekki að tengja i-podinn í græjurnar svo það geti hljómað hátt og snjallt þegar potturinn er vígður (courtesy hljómsveitin Blóð) : ÞAÐ ER ENGIN KREPPA!
Ummæli