Góðir landsmenn, enn einu sinni er komið að skammdegisþunglyndinu. Þrátt fyrir allt tal um hamfarahlýnun fer veður kólnandi á Fróni, myrkrið er allsráðandi meirihluta sólarhringsins, djúpt, svart og miskunnarlaust eins og hjartað í kvótakóngi. Jólin nálgast með sínum organdi börnum, viðbrenndu piparkökum, uppseldum leikföngum og öðrum pirringi og vonbrigðum. Maður þorir varla að eyða krónu í nokkurn skapaðan hlut orðið því allskonar jólatónleikar, föndurdagar, hlaðborð og auðvitað bjórsmökkunarpartí éta upp það sem átti að fara í kalkúninn og gjafirnar. Ekki furða að febrúar sé orðinn mest kvíðavaldandi mánuðurinn þegar kortareikningarnir koma. Bah húmbúkk! segir Feitibjörn. Nú er kominn tími til að hlusta á ungu kynslóðina, hætta þessu eilífa neyslufylleríi og snúa sér að því sem skiptir máli í lífinu. Sem er auðvitað bjór. Innan um allan þann barlóm sem ætlar allt lifandi að drepa í þjóðfélagsumræðunni þessa dagana er gaman að upplýsa ykkur lömbin mín um að árið 2019 er ...
Ummæli
Corona er ekki eitt af því sem kallast bjór.
Og hvað varðar sítrónu eða lime í stútinn.
Er það vegna C-vítamíns.
Mexíkóar eru það skítugir að þeir halda flugunum frá sjálfir.
Wv: kfpzbelk. Er þegar sítrusávaxtabátur situr fastur í hálsinum á manni eftir ofneyslu Corona.
Russian sex, teen kızların rus seks ve rus porno hikayesiyle ifşaları bir arada.