Heja Norge!

Tíu litlir satanistar drukku og fengu klígju
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá voru eftir níu

Níu litlir satanistar voru alltaf að þrátta
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá voru eftir átta

Átta litlir satanistar ældu klukkan tvö
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá voru eftir sjö

Sjö litlir satanistar reyktu hundakex
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá voru eftir sex

Sex litlir satanistar sungu dimmalimm
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá voru eftir fimm

Fimm litlir satanistar héldu að þeir væru stórir
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá voru eftir fjórir

Fjórir litlir satanistar komust í góðan gír
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá voru eftir þrír

Þrír litlir satanistar gátu ekki meir
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá voru eftir tveir

Tveir litlir satanistar hétu Geir og Hreinn
Einn þeirra skar sig á púls
Og þá var eftir einn

Einn lítill satanisti lá í eigin spýju
Hinir vöknuðu aftur upp
Og þeir urðu aftur tíu

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2021

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2022

Feitibjörn tekur pásu