Líf á Íslandi

Í fyrrakvöld var ég á æfingu í Tjarnarbíói, skrapp út í Eymundsson að fá mér kaffi. Á leiðinni til baka gekk ég yfir Austurvöll. Sá hóp unglinga sem hafði safnast saman í kringum styttuna af Jóni frænda Sigurðssyni. Einn hafði klifrað upp á styttuna, annar stóð fyrir neðan með kindarhauskúpu á priki og var að rétta hana upp til hins.

Ég gekk að einum og spurði hvað væri að gerast.

Þetta er svartigaldur, svaraði hann, Kárahjúkastífla var gangsett í dag. Við erum að bölva öllum þeim sem komu nálægt því.

Já, svaraði ég, þeir munu stikna í helvíti, hver og einn einasti. Svo gekk ég áfram.

Það var kallað á eftir mér, últra kurteisislega, EIGÐU GOTT KVÖLD!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Bwahahaha! Snild!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2021

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2022

Feitibjörn tekur pásu