Jólabaksturinn að byrja!

Jólakaka

1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af Grand

Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt. Takið stóra skál. Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt. Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið. Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál. Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur. Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla. Slökkvið á hrærivélinni. Brjótið tvær skurnir og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu ávöxtunum. Hrærið á kveikivélinni. Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með rúfskjárni. Bragðið á Grandinu til að athuga magnið. Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama. Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar. Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt. Smyrjið ofninn. Stillið kökuformið á 250°. Gleymið ekki að hræra í stillaranum. Hendið skálinni út um gluggann. Athugið Grandið aftur. Farið að sofa.

(Finnst nokkrum hvort sem er ávaxtakökur góðar?).

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2021

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2022

Feitibjörn tekur pásu