Færslur

Jólabjórrýni Feitabjarnar 2014

Mynd
Almáttugur, hvað þetta var erfitt!  Ég hef áður gert það að umtalsefni hversu fórnfús ég sé að leggja á mig þetta erfiði, að þræla mér í gegnum alla jólabjórana svo þið, kæru vinir, þurfið ekki að verða fyrir vonbrigðum eftir ferð í ríkið eða ef þið freistist til að kíkja á pöbbann í jólainnkaupunum. En þetta hefur aldrei verið jafn krefjandi verkefni og nú í ár. Síðastliðin tvö ár hafa jólabjórarnir sem ná inn í rýni hjá mér (útskýri reglur eftir smá) verið átján talsins en núna í ár voru þeir tuttugu og fjórir. Eins gott að ég fékk ríflega skuldaleiðréttingu, þótt ég skuldi varla neitt! Svo ég útskýri aðeins nánar: til þess að komast í bjórrýni hjá mér þarf bjórinn að vera fáanlegur í þeirri vínbúð sem ég kýs að heimsækja daginn sem ég ákveð að kýla á þessa smökkun. Svo vildi til að á föstudaginn var átti ég leið framhjá lítilsigldri vínbúið við Borgartún og sá að þar var verið að raða bjórum í hillur. Ég rak inn nefið til að telja og þóttist ég sjá fjórtán tegundir. Spu...

Jólabjórrýni feitabjarnar 2013

Mynd
Síðasta kaupstaðarferð fyrir jól og þar sem ekki er að treysta á ríkið á Dalvík (sem gengur undir nafninu “hreinsunin”) þá var ekki um annað að ræða en heimsækja Heiðrúnu og sjá hvort úrval ársins væri allt komið í hús.   Og viti menn! Það er augljóst að jólabjórrynin hjá mér í fyrra hefur skilað nokkrum árangri. Föröya Jólabryggj verður víst ekki í boði í ár. Þeir hafa lært að skammast sín helvískir. Mikkeller okurbjórarnir sem ég varaði við í fyrra eru heldur ekki til. Það er nú aldeilis notaleg tilfinning að vita að maður er hér að gera samfélaginu gagn, auk þess að skemmta fólki og leiðbeina því í hinum krefjandi frumskógi lífsins sem hið mikla úrval jólabjóra er. Hugsanlega munu fleiri tegundir koma í verslanir fyrir jólin, en ólíklegt er að þær nái alla leið norður á Dalvík. Ef ég get mun ég bæta þeim við síðar en ef ekki þá verða þessar átján að duga. Vísindalega þenkjandi vinur minn spurði mig út í rannsóknarsnið og ég get ljóstrað því upp að hér var um blindpr...

Jólabjórrýni 2012

Jæja, þá fara dagar að styttast og nætur að lengjast. Jólin nálgast og það gefur sumum okkar afsökun til að drekka meira en endranær. Jólabjór er fyrirbæri sem gleður marga þegar vel tekst til en varla er til í lífinu öflugra CAVEAT en þetta: Varizt eftirlíkingar. Jólabjór og jólabjór er nefnilega ekki það sama. Að drekka vondan jólabjór getur hreinlega eyðilagt hátíðirnar fyrir mönnum, svo ég hef tekið það að mér nú sem fyrri ár að fórna lífi mínu og lifur til þess að aðrir megi njóta góðs af. Ég þræla ofan í mig viðbjóði til þess að þú megir forðast hann. Fyrir pjúrista er rétt að taka fram að ákveðnar tegundir vantar í þessa umfjöllun mína. Steðji var ekki kominn í búðir og sorrí strákar, þá eruð þið bara ekki með. Eins voru bjórar sem voru með í fyrra sem töldust svo óviðeigandi að ég ákvað að sleppa þeim, þar á ég vð Stella Artois (venjuleg Stella í stórri glerflösku) og Samuel Adams Winter Ale (vetur er ekki sama og jól). Að auki fann ég jólabjór í Heiðrúnu sem ég...