Færslur

Ellý Ármanns

"Hún þverneitaði að taka hann upp í þverrifuna!" sagði ástleitni vinur minn sem hefur undanfarin ár rokkað á milli sjómennsku og verksmiðjustarfa, en aldrei verið í vandræðum með að heilla kellingar. "Hvað áttu við?" spurði ég forviða meðan ég smurði rúnnstykkið með beikonosti og gjóaði augunum af og til á forsíðu Fréttablaðsins þar sem sagt var frá stórfelldri líkamsárás fyrir utan strippstað í Kópavogi. "Bara! Hún er til í allskonar niðurlægingu, jafnvel létt ofbeldi. Ég má binda hana, flengja, taka í rass, brunda á brjóst, höku, bak og læri og hún virðist fá töluvert út úr því að ég tali niðrandi til hennar. En hún meikar bara ekki að totta mig, sama hvað ég sárbæni hana." Ég hristi hausinn og velti því fyrir mér hvort þessi vinur minn, sem yfirleitt hefur getað fengið konur til að gera allt sem honum dettur í hug, væri kannski að komast á aldur. "Þarftu ekki bara að kíkja á Victor einhverja helgina?" spurði ég. "Nei, fjandinn hafi það. É...

http://annabjo.blog.is/blog/annabjo/#entry-274473

Mynd
Fegurðarsamkeppni íslenskra orða er lokið og orðið "ljósmóðir" vann.

Viðurstyggilegi krakka-andskoti

Mynd
Djöfull áttu eftir að fara í taugarnar á mér þegar þú verður stór. grrrrrrrrrrrrrrr

Aumingja Teitur

Búið að reka þjálfara KR. Það passar, einmitt þegar þeir voru hættir að tapa fótboltaleikjum. Allsvakalegir hálfvitar sem ráða ríkjum þarna við Kaplaskjólsveginn. Því verri reynast heimskra manna ráð sem fleiri eru þar samankomnir.

Britain's next top... mass murderer???

Var að frétta af sjónvarpsþætti sem hefur gengið hjá frændum vorum Bretum undanfarið. Simon úr Idolinu er með þetta og virðist sem hann geti endalaust mjólkað sama fyrirbærið bara með því að gefa því nýtt nafn. Því hver er munurinn á Idol og X-factor og Britain's got talent? Basically enginn. Nema hvað. Sigurvegarinn í fyrstu seríunni (eða ætti maður að segja FYRRI seríunni) af þessum nýjasta þætti er feitur Walesbúi með ljótar tennur (OK, lýsingin gæti átt við alla sem koma frá Wales. Og Liverpool.) og hann ber hið óheppilega nafn Paul Potts. Kambódíumenn eru brjálaðir. "Khmer er þessi Paul Potts?" er haft eftir menntamálaráðherra þeirra. Ekki náðist í Valgerði Sverrisdóttur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. En ekki nóg með að hann heiti í höfuðið á kolbrjáluðum harðstjóra og stríðsglæðamanni. Onei. Heldur frétti ég það í gær að í úrslitaviðureigninni hefði hann "unnið sex ára stelpu" eins og það var orðað. Má það? Veit Femínistafélagið af þessu? Eru menn farnir...

Áfram Írak!

Írakar fagna nú gríðarlega þeim áfanga að hafa sigrað á Asíumóti landsliða í knattspyrnu. Fréttaskýrendur telja að þessi áfangi sýni betur en nokkuð annað að Írakar geti plummað sig án aðstoðar Bandaríkjamanna. Þess má geta að tilraunir til að koma á fót baseball-deild í Írak, sem hófust fljótlega eftir innrásina, hafa ekki heppnast sem skyldi.

Krúsin

Fór aftur á Krúsina í gær, eins og ég hafði lofað sjálfum mér að gera aldrei aftur. En það var bara gaman. Stemmningin minnti á þetta!